5.000 appelsínugular e-töflur sem voru í laginu eins og andlit Donalds Trump voru gerðar upptækar í bænum Osnabruck í Þýskalandi um helgina. Austurrískir feðgar sem eru taldir grunaðir um að eiga töflurnar voru handteknir.
Töflurnar voru seldar á internetinu undir slagorðinu, „Trump gerir djammið frábært á ný.“ Það er BBC sem greinir frá þessu.
Sjá einnig: Myndband: Fáránlega fyndinn slæmur varalestur á Trump og Obama á innsetningarathöfninni
Feðgarnir sem eru 17 ára og 51 árs voru teknir á bíl með efnin en talið er að töflurnar komi upphaflega frá Hollandi. Götuverð efnanna sem feðgarnir voru gripnir með er talið vera í kringum 5 milljónir króna.
Feðgarnir sitja nú í gæsluvarðhaldi og bíða dóms.