Auglýsing

Myndband: Reynir að klára fjórar Big Mac-máltíðir og fjóra mjólkurhristinga á klukkutíma

Nýjasta æðið um þessar mundir er hin svokallaða Big Mac áskorun en hún felst í því að borða fjórar Big Mac máltíðir og fjóar mjólkurhristinga á innan við klukkutíma. Til þess að teljast hafa klárað áskorunina þarf að halda góssinu niðri án þess að kasta upp í hálftíma eftir að síðasti bitinn er tekinn.

Blaðamaðurinn Kieron hjá breska vefmiðlinum unilad.co.uk ákvað að reyna við áskorunina. Hann byrjar nokkuð vel og tekst að klára tvo Big Mac hamborgara á innan við fimm mínútum. Eftir það fer róðurinn að þyngjast.

„Myndi ég mæla með þessu? Alls ekki. Mjólkurhristingurinn klárar þig,“ segir Kieron.

Horfðu á Kieron reyna við áskorunin í hér að neðan

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing