Það varð uppi fótur og fit hjá fylgdarliði Conor McGregor skömmu fyrir bardagann gegn Floyd Mayweather þegar í ljós kom að sérhönnuð punghlíf Conors gleymdist á hótelinu. Þetta kemur fram á vef TMZ.
Það var ekki aðeins punghlífin sem hafði gleymst heldur varð gómurinn líka eftir á hótelinu. Atvikið uppgötvaðist ekki fyrr en verið var að gera kappann klárann.
Einn aðstoðarmanna Conors brást fljótt við og náði að sækja hlífina, sérhönnuðu og góminn í tæka tíð. Hvers vegna punghlíf Conors McGregor er sérsmíðuð skal ósagt látið.