Rapparinn, Lil Wayne var fluttur á spítala í nótt eftir að hafa fengið flogakast á hótelherbergi í Chicago.
TMZ greinir frá þessu en hann var meðvitundarlaus þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Farið var með kappann í flýti á Northwestern Memorial sjúkrahúsið í Chicago en talið er að hann hafi fengið slæmt flogakast.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rapparinn fær slæmt flogakast en aðeins er tæpt ár síðan hann var fluttur á sjúkrahús eftir nokkur köst. Til stóð að Lil Wayne kæmi fram á tónleikum í gærkvöldi en þeim var frestað.