Rapparanir ungur, JóiP og Króli sendu frá sér nýtt lag í hádeginu í dag sem kallast B.O.B.A. Lagið hefur fengið frábærar viðtökur á samfélagsmiðlum og sagði rapparinn fyrrverandi og fjölmiðlamaðurinn Kjartan Atli að lagið væri eitt af lögum ársins.
B.O.B.A. er klárlega eitt af lögum ársins. SHIT HVAÐ ÞETTA ER GOTT LAG! ???
— Kjartan Atli (@kjartansson4) September 4, 2017
Lagið er unnið í samvinnu við $tarra og Þormóð Eiríksson og því fylgir glæsilegt myndband sem Hlynur Hólm Hauksson leikstýrir.