Eins og Nútíminn greindi frá á föstudaginn er athafnakonan og yngsta systirin í Kardashian-fjölskyldunni, Kylie Jenner, ófrísk. Bandaríski vefmiðilinn TMZ hefur nú greint frá því að Jenner og kærastinn hennar, rapparinn Travis Scott, eigi von á stúlku.
Kylie, sem er 20 ára og Scott sem er fimm árum eldri hafa verið að rugla saman reitum frá því í apríl á þessu ári en hún er gengin fimm mánuði með stúlkuna.
Nútíminn óskar parinu innilega til hamingju.