Finnska hetjan, Pyry Soiri er nýjasta þjóðhetja Íslendinga eftir að hann skoraði jöfnunarmark Finna gegn Króatíu á föstudaginn. Mark Pyvi varð til þess að Ísland komst á topp riðils síns í undankeppni HM og er með pálmann í höndunum fyrir leikinn gegn Kósóvó á morgun.
Skömmu eftir markið var stofnuð aðdáendasíða í nafni Pyry Soiri á Facebook þar sem þúsundir Íslendinga hafa skráð sig.
Í dag ákvað Pyry að þakka stuðninginn og senda þjóðinni kveðju. „Ég gerði mitt og nú er komið að ykkur. Gangi ykkur vel gegn Kosóvó,“ segir Pyry í myndbandi sem birtist á Twitter og sjá má hér að neðan.
Islannin suosituimman suomalaisen Pyry Soirin terveiset islantilaisfaneille. Pyry Soiris message to icelandic football fans.#huuhkajat pic.twitter.com/qfr8KLdQps
— Huuhkajat (@Huuhkajat) October 8, 2017