Eldur kom upp í þaki Hotel Natura, við Nauthólsveg í Reykjavík á þriðja tímanum í dag. Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var sent á vettvang. Rúv.is greinir frá því að búið sé að slökkva eldinn.
Hótelið var rýmt og fjöldi fólks er nú staddur fyrir utan hótelið meðan slökkvistarf fer fram.
Fréttin verður uppfærð.