Auglýsing

Önnur leikkona stígur fram og sakar Ed Westwick um nauðgun

Athugið áður en þið lesið þessa frétt að í henni er að finna lýsingar á hræðilegu kynferðislegu ofbeldi. 

Breski leikarinn Ed Westwick hefur nú verið sakaður um nauðgun í annað skipti í þessari viku. Leikkonan Kristina Cohen greindi frá því að Ed hafa nauðgað sér þegar hún var gestkomandi á heimili hans fyrir þremur árum. Nú hefur önnur kona, Aurélie Wynn, deilt því opinberlega að hún hafi lent í svipuðu atviki og Cohen.

Sjá einnig: Lilja lýsti ruddaskap Ed Westwick og var sögð ástæða þess að íslenskar stelpur væru kallaðar druslur

Aurélie lýsir atvikinu í samtali við Metro. „Hann ýtti mér og hélt mér niðri með andlitið á grúfu, ég var valdlaus gagnvart styrk hans. Ég var klædd í sundbol sem hann reif í sundur, ég var í algjöru sjokki,“ segir Aurélie

Aurélie þakkar Kristinu Cohen fyrir að hafa sagt sína sögu. „Án þín hefði ég ekki haft styrk til að til að segja frá þessu opinberlega.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing