Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, ætlar að kanna hvort rétt sé að nota námslánakerfið til að hvetja fólk til að setjast að í dreifðum byggðum. Lilja horfir til Noregs eftir fyrirmynd að kerfinu en þar getur fólk fengið tíu prósent lækkun á námslánum árlega hafi það búið á tilgreindum svæðum í tólf mánuði. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
„Þetta gengur út á að fólk sem býr og vinnur á svokölluðum aðgerðasvæðum og er með námslán gæti sótt um afslátt af námslánum. Í mörgum tilvikum hefur þetta fólk ílengst á svæðinu eftir að námslán þess eru greidd að fullu,“ er haft eftir Lilju í Fréttablaðinu í morgun.
Lilja segir að úrræðið verði unnið í tengslum við heildarendurskoðun námslánakerfisins en ekki liggur fyrir hvenær það geti komist í framkvæmd.