Auglýsing

Simone Biles: „Ég er líka ein af þeim sem lifði það af að vera kynferðislega misnotuð af Larry Nassar“

Bandaríska fimleikakonan, Simone Biles, hefur nú bæst í hóp þeirra sem saka fyrrverandi lækni bandaríska fimleikalandsliðsins, Larry Nassar um misnotkun. Biles greindi frá þessu á Twitter seint í gærkvöldi. 

„Ég er líka ein af þeim sem lifði það af að vera kynferðislega misnotuð af Larry Nassar,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Larry Nassar var á dögunum dæmdur í sextíu ára fangelsi fyrir vörslu barnakláms en hann viðurkenndi einnig að hafa misnotað fimleikastúlkur sem hann var með í meðhöndlun.

Í yfirlýsingu Biles segist hún ekki ætla láta Nassar stela frá sér gleðinni. Hún segist staðráðin í að komast í gegnum þetta og hefur sett stefnuna á að vinna fleiri Ólympíugull í Tókýó 2020.

„Ég veit að þessi hræðilega reynsla mun ekki skilgreina mig því ég er miklu meira en þetta,“ skrifaði Biles.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing