Myndband sem sýnir slökkviliðsmenn grípa barn sem kastað var úr stiga við brennandi hús í borginni Decatur í Bandaríkjunum hefur farið sem eldur í sinu um internetið. Tólf manns slösuðust í eldsvoðanum, þó enginn alvarlega. Sjáðu myndbandið hér að ofan.
Stiga var komið fyrir til að aðstoða fólk við að komast út úr brennandi húsinu og neyddist einn faðir til að kasta barni efst úr stiganum í fang slökkviliðskonunnar Jackie Peckrul.
Fram kemur í frétt CBS að fleiri börnum hafi verið kastað niður af svölum hússins. „Við vorum að grípa börn þarna eins og fótbolta,“ segir Eric Jackson í samtali við CBS.