Stikla fyrir kvikmynd um Rachel, Ross og félaga í Friends hefur ruglað aðdáendur þáttanna um allan heim í ríminu. Stiklan er komin með milljónir áhorfa á Youtube og Facebook en það er eitt slæmt við hana: Það er engin Friends-kvikmyndin á leiðinni.
Horfðu á stikluna hér fyrir ofan. Hún notar brot úr ýmsum þáttum og myndum sem aðalleikarar Friends hafa leikið í undanfarin ár. Því er svo púslað saman í ansi steikta heild sem hefur á einhvern ótrúlegan hátt platað fólk.