Íslandsbanki setti í gær færslu á Twitter sem vakið hefur mikla athygli. Í færslunni er skotið nett á athafnamanninn Óla Geir sem hefur verið harðlega gagnrýndur og sakaður um að endurselja ódýr úr undir nafninu Nora Watches á uppsprengdu verði.
Viðskipti Óla með úr voru mikið í umræðunni á þriðjudaginn og DV fjallaði um málið eftir að Twitter-notandinn Daníel Ólafsson bar saman úr sem Nora Watches selur og úr sem seld eru á vefsíðunni Gearbest.com. Úrin sem virðast samskonar kosta tæplega 3.000 krónur á Gearbest en samkvæmt vefsíðu Nora Watches kostar ekkert úr þar minna 15 þúsund krónur.
Hversu soon Óli Geir? Bara as soon as sendingin af þessum 28.36$ úrum lenda hjá þér? Spennó tímar hjá NORA maður pic.twitter.com/CygewxfrX0
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) January 29, 2018
Í gær kynnti Íslandsbanki svo nýtt úr sem mörgæsin Georg og félagar eru að vinna í. „Vorum að klára þetta úr. Coming soon, nýir og spennandi tímar framundan hjá GOGGA,“ segir í færslunni sem sjá má hér að neðan en eins og glöggir lesendur sjá er þetta sami texti og Óli Geir notaði þegar hann kynnti nýja úrið frá Nora Watches.
Vorum að klára þetta úr. Coming soon ? nýir og spennandi tímar framundan hjá GOGGA. pic.twitter.com/07AYpiGS8Q
— Íslandsbanki (@islandsbanki) January 31, 2018
Færslan hefur hlotið töluverða athygli á Twitter en ekki eru allir hrifnir af uppátækinu. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru fjölmiðlamennirnir Hjörvar Hafliðason og Þorkell Máni Pétursson.
Þetta er liklega það vandræðarlegasta á netinu í dag. https://t.co/B7WXKYJ1gN
— Máni Pétursson (@Manipeturs) January 31, 2018
Óli Geir á svo mikið af haters! Meira að segja banki í eigu þjóðarinnar hatar hann. https://t.co/tDbCcK6x2M
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) January 31, 2018