Magnús Ver Magnússon, sem vann keppnina sterkasti maður heims alls fjórum sinnum, kemur fram í nýrri auglýsingu fyrir pallbílinn Dodge Ram ásamt hópi Íslendinga. Horfðu á auglýsinguna hér fyrir ofan en hún var frumsýnd í tengslum við Ofurskálina, úrslitaleikinn í ameríska fótboltanum í nótt.
Bandarískir áhorfendur á þessum stærsta sjónvarpsviðburði ársins fengu að dást að íslensku landslagi í auglýsingunni áður en víkingarnir byrja að syngja Queen-slagarann We Will Rock You og draga víkingaskip á eftir sér.
Þeir fara svo á rúntinn og snúa dæminu við; víkingaskipið dregur jeppann.