Auglýsing

R. Kelly sakaður um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku

Ný heimildarmynd um bandaríska tónlistarmanninn R. Kelly verður sýnd á BBC3 á næstu dögum. Í myndinni sem ber heitið R Kelly: Sex, Girls and Videotapes er Kelly meðal annars sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn fjórtán ára stúlku.

Í myndinni greinir fyrrverandi kærasta Kelly, Kitti Jones frá því að hann hafa reynt að búa 14 ára stúlku undir að verða kynlífsþrællinn hans. Ítarlega er fjallað um málið í breska blaðinu Guardian.

Í myndinni segir Jones frá stormasömu sambandi hennar við Kelly. Hún segir hann hafa stjórnað sér og neytt sig til að stunda kynlíf með honum og öðrum. „Ég var kynnt fyrir einni af stúlkunum sem hann sagðist hafa þjálfað frá því hún var fjórtán ára gömul. Það var þá sem ég fattaði að Kelly var að búa mig undir að verða eitt af gæludýrum hans,“ segir Kitti samtali við Guardian.

Kelly hefur alfarið neitað að tjá sig um málið við fjölmiðla.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing