Hrekkjalómar voru á ferð á Selfossi í nótt. Klifruðu þeir upp á verslunina Krambúðina við Tryggvagötu og breyttu skiltinu úr Krambúð og „Klámbúð“. Árvökull vegfarandi tók þessa mynd hér fyrir ofan og Nútíminn fékk góðfúslegt leyfi til að birta hana.
Hrekkjalómarnir breyttu r-inu í skiltinu í l og a í á. Þeir hafa augljóslega lagt nokkra vinnu í verkið en þeir þurftu að klifra upp á verslunina áður en vinnan við breytinguna hófst.