Ísland verður annað á svið í fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision í Lissabon 8. maí. Forsvarsmenn keppninnar greindu frá þessu fyrr í dag en framlag Aserbaísjan verður fyrst á þriðjudagskvöldinu, næstur verður svo Ari Ólafsson með lagið Our Choice.
The running order of the #Eurovision 2018 Semi-Finals is here! https://t.co/DHdRjEdH32 pic.twitter.com/s6VG1g26NI
— Eurovision Song Contest (@Eurovision) April 3, 2018
Seinna undanúrslitakvöldið fer fram 10. maí en þar eru það Norðmenn sem stíga fyrstir á svið. Lokakvöldið verður síðan 12. maí.
Þetta er í annað sinn sem framlag Íslands er númer tvö á undanúrslitakvöldi en Jónsi og Greta Salóme komust áfram með lagið Never Forget árið 2012 eftir að hafa farið önnur á svið.