Sonja Rut Valdin er hætt í samfélagsmiðlahópnum Áttunni. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hópurinn sendi frá sér á Facebook í dag.
Sjá einnig: Börn og unglingar bíða í hópum fyrir utan heimili Sonju í Áttunni: „Reyni alltaf að taka þeim fagnandi“
„Fyrir ári síðan kom Sonja Valdin til starfa hjá Áttunni. Á þessu ári hefur hún gert vægast sagt magnaða hluti með okkur, nú stígur hún til hliðar og við óskum henni alls hins besta í nýjum og spennandi verkefnum,“segir í tilkynningunni.
Sonja Rut Valdin skaust hratt upp á stjörnuhimininn þegar lagið NEINEI með Áttunni sló rækilega í gegn á síðasta ári. Sonja varð strax afar vinsæl og er með tæplega 17 þúsund fylgjendur á Instagram.
Áttan birti þetta myndband eftir að tilkynnt var um brotthvarf Sonju
? Sonja stígur til hliðar! ? Fyrir ári síðan kom Sonja Valdin til starfa hjá Áttunni. Á þessu ári hefur hún gert vægast sagt magnaða hluti með okkur, nú stígur hún til hliðar og við óskum henni alls hins besta í nýjum og spennandi verkefnum ?
Posted by Áttan Þættir on Þriðjudagur, 3. apríl 2018