Auglýsing

Sjö frasar á Instagram sem eru allt of mikið notaðir: „Þessi á afmæli og því ber að fagna“

Enginn Íslendingur má lyfta fingri án þess að taka af því mynd og deila með vinum og vandamönnum á samfélagsmiðlum. Instagram er afar vinsæll staður til þess að deila slíkum myndum og einhverra hluta vegna hefur skapast sú hefð að skrifa ófrumlega frasa við myndirnar.

Ég hef aðeins rýnt í hegðun Íslendinga á Instagram og tekið saman þá sjö frasa sem eru þreyttastir. Ég legg til að þessir sjö verði aldrei notaðir aftur.

1. Summer vibes

Ég veit ekki einu sinni hvað þetta þýðir en það eru allir að skrifa þetta við sólríkar myndir.

2. Sjáumst í háloftunum

Sumarstarfsfólk stóru flugfélaganna skrifa þetta undir allar myndir sem birtar þau birta af sér í einkennisbúningi.

3. Brúðkaupsfín/n og Afmælisfín/n 

Frasi sem veislugestir í brúðkaupum og afmælum nota undir myndum af sér í fínum fötum. Vel þreytt dæmi.

4. Þessi

Ástfangið fólk notar þennan frasa mikið undir myndir af fólkinu sem það elskar. Því fylgir mjög oft emoji kall með hjörtu í augunum.

5. … og því ber að fagna

Þetta er frasi sem er mikið notaður við myndir af fólki með glas í hönd. Dæmi: „Embla á afmæli og því ber að fagna“

6. Please take me back

Þessi frasi er mjög algengur hjá yngra fólki. Fólk notar hann með myndum af sér á sundfötum í útlöndum. Gjarnan mörgum mánuðum eftir heimkomu.

7. Stranglega bannað að hafa áhyggjur af mér

Þessi frasi er mikið notaður af fólki sem vill grobba sig af því hvað það hefur það fínt í þeim aðstæðum sem það er statt. Oftar en ekki með áfengi í hönd á erlendri grundu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing