Félagið Ísland-Palestína hefur gefið út yfirlýsingu vegna sigurs Ísrael í Eurovision sem fram fór í Lissabon í gær. Í yfirlýsingunni harmar félagið að Evrópa skuli ekki hafa staðið með mannréttindum. Yfirlýsinguna í heild má sjá hér að neðan.
Sigurvegari keppninnar, hin ísraelska Netta Bazilai, sagði eftir sigurinn að næsta keppni yrði í Jerúsalem en keppnin var síðast haldin þar árið 1999.
„Sagan sýnir að hernáminu og ofbeldinu linnir ekki nema með afdráttarlausri afstöðu alþjóðasamfélagsins gegn framferði sem þessu,“ segir í yfirlýsingunni.
Í yfirlýsingunni þakkar félagið fyrir þann gríðarlega stuðning sem málstaðnum hefur verið sýnt eftir úrslitin. „Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar skráningar um félagsaðild borist á jafn skömmum tíma.“
Félagið Ísland Palestína harmar það að Evrópa skuli ekki hafa staðið með mannréttindum og valið að næsta Eurovision…
Posted by Félagið Ísland-Palestína on Laugardagur, 12. maí 2018