Fjölskyldufaðirinn Dennis Leavey frá Queens í New York bjóst kannski ekki við að slá í gegn á internetinu í vikunni en það gerði hann nú samt. Allt út af einni áhugaverðri mynd.
(Sjá mynd)
Wowwwewww pic.twitter.com/6ru2jijpis
— Dom(Unique) (@tooshortforwhat) May 15, 2018
Nema hvað. Þessi mynd fór á gott flug í kjölfarið. Þúsundir athugasemda, læka og deilinga. Skiljanlega kannski.
Það var samt ekki fyrr en dóttir Dennis rakst á myndina að hún fór á almennilegt flug. Og það er kannski viðbrögðum hennar að þakka. Sjáum tíst.
You ever check twitter and realize your fucking father has turned into a meme? https://t.co/fcGn7JpdP2
— alex (@A_coolestgirl) May 16, 2018
„Hefurðu farið á Twitter og uppgötvað að helvítis pabbi þinn er orðinn að meme.“
????????????
Alex Leavey, dóttir Dennis, segir í samtali við Buzzfeed News að unnusti systur hennar hafi sýnt henni myndina. „Ég sá um leið að þetta væri pabbi og hló að flestum athugasemdunum,“ sagði hún.
„Pabbi er mjög fyrirferðarmikill persónuleiki þannig að þeim sem þekkja hann fannst mjög fyndið að af öllum mönnum skuli hann hafa lent á þessari mynd.“
Alex segir pabba sinn vera blindan á öðru auga og að hann segist vera að horfa niður á myndinni.“