Eins og alþjóð veit þá gengu Harry Bretaprins og Meghan Markle í það heilaga Windsor-kastala á laugardaginn. Nú hafa hjónin gefið út opinberar brúðkaupsmyndir. Myndirnar voru birtar á samfélagsmiðlum konungsfjölskyldunnar í dag og eru afar glæsilegar.
Sjá einnig: Konunglega brúðkaupið er það eina sem talað er um á Twitter: „Af hverju er ég að grenja?“
Myndirnar sem sendar voru út eru þrjár en það er ljósmyndarinn Alexi Lubomirski tók myndirnar. Í tilkynningu sem konungsfjölskyldan sendi með myndunum segir að hjónin séu afar þakklát öllum þeim sem tóku þátt í veislunni um helgina.
Glæsilegar myndir!
Their Royal Highnesses The Duke and Duchess of Sussex have released three official photographs from their Wedding day….
Posted by The Royal Family on Mánudagur, 21. maí 2018