Hinn þrítugi Michael Rotondo var í gær dæmdur til að flytja frá heimili foreldra sinna, eftir stutta baráttu fyrir dómstólum. Foreldrar hans höfðu beðið hann um að flytja út og eftir að hann hafnaði því leituðu þau til dómstóla.
Michael er atvinnulaus og miðað við viðtalið hér fyrir neðan lítur hann á sig sem fórnarlamb í málinu. Foreldrar hans höfðu sent honum fjölda formlegra bréfa þar sem þau óskuðu eftir því að hann myndi flyjta út en hann hlýddi ekki.