Rapparinn Gísli Pálmi sendi frá sér plötuna Frost fyrir helgi. Myndmálið á umslagi plötunnar hefur vakið athygli en þar er að finna þekkt tákn sem margir tengja til dæmis við frímúrara og ríkjandi valdhafa í heiminum.
Til að rýna í myndmálið leitaði Nútíminn til Sigurgeirs Bergssonar, sem stýrir hópnum Íslenskar samsæriskenningar á Facebook. Rúmlega 3.500 manns eru í hópnum og þar fara fram líflegar umræður um málefni líðandi stundar.
Sjá einnig: Gísli Pálmi blótaði sjö sinnum á 15 sekúndum í viðtali á RÚV
Sigurgeir segir í samtali við Nútímann að nokkur tákn á umslaginu séu frá frímúrarareglunni. „Þarna er sirkill með auganu alsjáandi efst og jafnhliða réttskeið,“ segir hann og lesendur geta rýnt í myndina til að sjá hvað hann er að tala um.
„Súlurnar eru með form visku, eða Solomon King of Israel-tákn og handamerkin eru öfug. Þannig að þessi samsetning er léleg eftirherma — í sjálfu sér ekkert merkileg mynd.”