Kona sem flutt var slösuð á sjúkrahús í Reykjavík í gær vegna höfuðáverka sem hún hlaut eftir að hún féll á göngustíg við Reynisfjöru er látin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Konan var erlendur ferðamaður, fædd árið 1938.
Tilkynning barst neyðarlínu um kl. 14:30 í gær og voru viðbragðsaðilar á Suðurlandi þegar kallaðir til. Konan var flutt til móts við þyrlu LHG með sjúkrabifreið og svo áfram með þyrlunni til Reykjavíkur.