Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði á Alþingi í vikunni að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, væri að slá met í framlagningu fyrirspurna og spurði þingheim hvort einhver væri sammála sér um þetta væri komið út í tóma þvælu.
Björn Leví er afar duglegur við að leggja fram fyrirspurnir en sú eftirminnilegasta er eflaust um aksturskostnað þingmanna, þar sem kom í ljós að þingmaðurin Ásmundur Friðriksson hefur varla yfirgefið bílinn sinn síðan hann varð þingmaður.
Nútíminn tók saman nokkrar hressar fyrirspurnir frá Birni Leví.