Auglýsing

Ljón, tígrísdýr og jagúar sluppu úr dýragarði í Þýskalandi

Tvö ljón, tvö tígrisdýr og einn jagúar sluppu úr dýragarði í Lünebach í Þýskalandi í morgun. Dýrin fundust upp úr hádegi í dag og var þeim komið aftur í dýragarðinn. Í tilkynningu frá lögreglu var fólki ráðlagt að halda sig innandyra á meðan leitin stóð yfir.

Mikil leit var sett af stað á svæðinu til þess að finna kattardýrin fimm. Björn sem slapp einnig úr garðinum var skotinn til bana stuttu síðar.

Fjölmiðlar í Þýskalandi greindu  frá því að dýrin hafi sloppið úr garðinum eftir óveður og flóð í nótt sem olli skemmdum á girðingum garðsins. Lögreglu- og slökkviliðsfólk leiddi leitina en dýrin fundust með hjálp frá dróna.

Dýragarðurinn sem um er ræðir heitir Eifel en þar eru um 400 dýr til sýnis.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing