Auglýsing

DJ Muscleboy sýnir heiminum hvernig á að framkvæma Víkingaklappið í vöðvamesta HM lagi sögunnar

Tónlistarmaðurinn Egill Einarsson sem gengur undir listamannsnafninu DJ Muscleboy sendir í dag frá sér HM lag sem ber heitið #VIKINGCLAP. Horfðu á myndband við lagið hér að neðan.

Egill vann lagið í samstarfi við þýsku rafgrúppuna Bodybangers og útkoman er stórkostleg. Þetta er fyrsta stuðningsmannalagið frá DJ Muscleboy og kemur það út daginn áður en Íslendingar hefja leik á HM í Rússlandi gegn Argentínumönnum.

Hann biðlaði til íslensku þjóðarinnar að senda inn skemmtilegar víkingaklapps-klippur og segist hafa fengið nóg af myndböndum. Hann gerði sitt allra besta til að koma sem flestum fyrir í myndbandinu.

Egill segir ástæðuna fyrir laginu vera einfalda. „Muscleboy hefur séð mikið af fólki útum allan heim framkvæma víkingaklappið vitlaust og fann sig knúinn til aðgerða. Hann réttir nú fram hjálparhönd til að fólk geti lært að taka hið fullkomna klapp. Til hamingju Ísland.”

Einnig er hægt að hlusta á lagið á Spotify hjá DJ Muscleboy.

Horfðu á myndbandið

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing