Guðmundur Björn Þorbjörnsson, fréttamaður á RÚV, rifjar upp mjög vandræðalegt en jafnframt bráðfyndið atvik sem átti sér stað í fréttatíma stöðvarinnar í seinustu viku.
Guðmundur var þá staddur í Rostov í Rússlandi þar sem lokaleikur Íslands á HM fór fram. Í beinni útsendingu fréttatímanns eftir leikinn skipti Bogi Ágústsson úr Efstaleitinu yfir á Guðmund í Rússlandi.
Mikil töf stríddi þeim félögum og úr varð eitt vandræðalegasta augnablik í sjónvarpi síðustu ár.
Guðmundur birti myndband af atvikinu á Instagram-síðu sinni. Þögnin er óbærilega löng en úr verður skondið atvik
https://www.instagram.com/p/Bkw_zw2AJ8v/?taken-by=gudmundurbjorn