Auglýsing

Rúrik ekki vanur því að vera í sviðsljósinu: „Fólk hefur kannski verið búið að ákveða hvernig týpa ég er”

Rúrik Gíslason var gestur í útvarpsþættinum Brennslunni á FM957 í morgun. Þar fór Rúrik yfir fótboltaferil sinn og ræddi um það hvernig það var að fara ungur út í atvinnumennsku. Að sjálfsögðu var minnst á Instagram fylgjendur Rúriks. Rúrik er með flesta fylgjendur á Instagram af öllum Íslendingum en þeim fjölgaði hratt eftir að hann kom inn á fyrir Ísland gegn Argentínu á HM.

Hjörvar Hafliðason þáttastjórnandi spurði Rúrik hvort að hann ætlaði sér að nýta þessa Instagram athygli á einhvern hátt.

Sjá einnig: Rúrik hlutgerður af argentískum konum og hataður af argentískum körlum: „Ég skal hugga þig“

„Það mun ábyggilega vera eitthvað um það já. Snorri (umboðsmaður Rúriks) er svolítið að sjá um þetta allt saman. Þetta er allt rosalega nýtt fyrir mér og ég þekki voða lítið á þennan markað” sagði Rúrik.

Ég hef oft sagt að mér finnst ekkert leiðinlegt að sitja fyrir og vera í einhverjum módel giggum. Ég hefði ekkert á móti því að þetta myndi þróast í þá áttina

Hlustendur fengu að spurja Rúrik spurninga en hann var meðal annars spurður um hversu mörg tungumál hann talaði og hvenær hann ætlaði sér að eignast barn. Rúrik sagðist tala reiprennandi dönsku eftir átta ár þar í landi og að hann gæti einnig talað þýsku og ensku. Þá getur hann ímyndað sér að eignast barn eftir um fjögur ár þó að hann sé ekkert búinn að merkja það í dagatalið sitt.

Sjá einnig: Rúrik tjáir sig um alla athyglina: „Erfitt að tala um þetta án þess að virðast hrokafullur”

Rúrik var ekki valinn í íslenska hópinn fyrir Evrópumótið í Frakklandi fyrir tveimur árum en hann segir að það hafi verið gífurleg vonbrigði.

„Það voru langstærstu vonbrigðin á ferlinum en svona vonbrigði leiða oft eitthvað gott af sér. Ég hef ekki verið einn af aðalmönnunum í þessu landsliði undanfarin ár en ég er staðráðinn í að bæta úr því og gera vel með landsliðinu á næstu árum.”

Að lokum spjölluðu þeir aftur um athyglina sem Rúrik hefur fengið í kjölfar HM í Rússlandi.

„Eins og ég segi þá er þetta allt voða nýtt fyrir mér.Ég er ekkert mikið fyrir að vera í sviðsljósinu og tala þannig að fólk hefur kannski verið búið að ákveða svolítið hvernig týpa ég er og jafnvel búið til einhverjar skemmtilegar sögur,” sagði Rúrik og vísaði meðal annars í Instagram aðgang þar sem óprúttinn aðili þóttist vera Rúrik.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing