Netflix hefur birt fyrstu myndina af Oliviu Colman í hlutverki Elísabetar Englandsdrottningar í sjónvarpsþáttunum vinsælu The Crown. Síðastliðinn október var tilkynnt að hún myndi taka við hlutverki drottningarinnar af Claire Foy sem hefur leikið hana eftirminnilega í fyrstu tveimur þáttaröðunum.
Colman er þekkt fyrir leik sinn í spennuþáttunum Broadchurch og The Night Manager og gamanmyndum á borð við Hot Fuzz.
Hver þáttaröð The Crown tekur fyrir einn áratug í lífi drottningarinnar og því var ákveðið að skipta um leikarahóp á tveggja þáttaraða fresti til að hafa þættina sem raunverulegasta.
Myndin af Colman í hlutverki drottningarinnar var birt á Facebook-síðu þáttaraðarinnar.„Þolinmæði“ var undirskrift myndarinnar en von er á nýju þáttaröðinni á næsta ári.
Nýjir leikarar voru einnig ráðnir í önnur hlutverk í þættinum en Tobias Menzies mun leika Philip drottningarmann, Helena Bonham Carter mun leika systur drottningarinnar Margréti og Ben Daniels leikur eiginmann hennar, Anthony Armstrong-Jones. Ekkert hefur enn verið gefið upp um hver mun leika arftaka krúnunnar, Karl Bretaprins.
Fyrstu tvær þáttaraðirnar eru á Netflix.