Leikarinn og grínistinn Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi, birti í dag athyglisverð skilaboð sem hann fékk frá erlendum karlmanni. Karlmaðurinn sagðist vera mikill aðdáandi Steinda og vildi fara á stefnumót með honum.
„Hæ. Elska þáttinn þinn og þú ert maður sem ég myndi ekki hika við að fara á stefnumót með. Afklæðumst og fáum okkur sundsprett á Þingvöllum,“ segir maðurinn í skilaboðunum til Steinda.
Steindi birti skjáskot af skilaboðunum á Instagram síðu sinni en var búinn að stroka yfir nafn mannsins. Hann sagði að tilboðið væri fáránlega freistandi og að hann myndi hugsa málið vandlega.