Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður verður með óvænta tónleika núna í hádeginu á Pylsubarnum í Hafnarfirði. Gunni og Felix verða kynnar og fríar pylsur verða í boði á meðan byrgðir endast.
Með tónleikunum er Friðrik að sýna þakklæti sitt fyrir velgengnina í tónlistinni síðustu ár. Einnig verður þetta upphitun fyrir stórtónleika sem hann ætlar að vera með í Kaplakrika í október en það verða kveðjutónleikar Friðriks því hann er að flytja til ítalíu og fara í nám.
Sjá einnig: Friðrik Dór leggur land undir fót og lætur gamlan draum rætast: Ætlar í nám í innanhúshönnun á Ítalíu
Frítt verður á tónleikana í dag sem verða á Pylsubarnum í Hafnarfirði klukkan 12. Pylsubarinn er niðri við höfnina á Fjarðargötu 9, nálægt Firði verslunarmiðstöð.
Eins og áður kom fram verða fríar pylsur í boði fyrir gesti á meðan byrgðir endast og Gunni og Felix verða kynnar.