Leik- og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir landaði risa hlutverki hjá sjónvarpsrisanum HBO og mun leika eitt af aðalhlutverkum í nýrri sjónvarpsseríu stöðvarinnar sem á að gerast á víkingatímabilinu. Það er Smartland Mbl sem greinir frá.
Ágústa hefur verið með annan fótinn í Noregi síðan í byrjun árs samkvæmt fréttinni og nú virðist vera komin útskýring á ferðalögum hennar þangað því að prufurnar fyrir sjónvarpsseríuna fóru fram þar.
Samkvæmt fréttinni fékk hún hlutverkið eftir að hafa verið valin úr hópi nokkur hundruða umsækjenda.