Vefmiðillinn TMZ hefur birti myndband sem sýnir Joseph Baena, son leikarans og kraftakarlsins Arnolds Schwarzenegger, taka hrikalega á því í ræktinni. Svo virðist sem sá stutti ætli að feta í fótspor gamla mannsins en í myndbandinu er hann með tæplega 55 kílóa handlóð í hvorri hönd. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Í október birti Arnold mynd af feðgunum saman í ræktinni. Myndin sýndi tvennt: Strákurinn er í hrikalega góðu standi og Arnold er í svakalegu standi miðað við að vera orðinn 71 árs gamall.