Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, þarf ekki að óttast að malbikuð leið meðfram Landssímahúsinu við Austurvöll sé varanleg. Sigmundur viðraði þessar áhyggjur í Fréttablaðinu í gær. Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns sem stendur að uppbyggingunni á Landssímalóðinni, veltir fyrir sér hvað Sigmundur gangi til með þessum vangaveltum.
Umrædd leið er hluti af framkvæmdum sem standa yfir á Landssímareitnum þar sem verður meðal annars nýtt hótel. „Maður vill trúa því að þetta eigi að vera tímabundið en hversu lengi á það tímabundna ástand að vara?“ sagði Sigmundur í Fréttablaðinu.
Hvers vegna er verið leggja þarna veg og malbika hann? Er það til marks um það að þetta verði svona í mörg ár? Svo er hættan líka sú að það sem kynnt er sem bráðabirgðaráðstöfun í upphafi reynist á endanum varanlegt.
Jóhannes tísti um fréttina á Twitter í gær og sagði meðal annars að fréttin væri „þvílíkt vindhögg“ hjá Sigmundi
Þvílíkt vindhögg hjá Sigmundi Davíð. Þessi malbikaði stígur er þarna svo slökkviliðið komist í Vallarstræti, svo að fólk með fötlun komist ferða sinna og svo Alþingismenn, þ.m.t hann sjálfur, geti labbað yfir Austurvöll beint úr þinghúsinu. Hvað gengur honum til? ???? pic.twitter.com/phaOE5dEJR
— Jóhannes Stefánsson (@joistef) September 8, 2018
Jóhannes hélt áfram og að sagði að Sigmundur Davíð hefði getað hringt í sig. „Hann er með símann hjá mér. Eða þá talað við skrifstofu Alþingis, sem gerði kröfu um þennan stíg. Jafnvel bara þjónustuver Reykjavíkurborgar. Óþarfa fyrirhöfn að heyra í Fréttablaðinu til að fá svör við svona spurningum,“ sagði Jóhannes í tísti sínu.
Hann velti svo fyrir sér hvernig Sigmundi dytti í hug að þeir vilji vera með malbikaðan stíg yfir Austurvöll lengur en nauðsyn krefur. „Hvað næst, ásakanir um að við leggjum okkur hvolpa og kettlinga til munns?“