Auglýsing

Höfundur „How to Murder Your Husband“ ákærð fyrir morðið á eiginmanni sínum

Rithöfundurinn Nancy Brophy, sem birti meðal annars greinina „How to Murder Your Husband“, hefur verið ákærð fyrir morðið á eiginmanni sínum. Þetta kemur fram á vef Huffington Post.

Lögreglan í Portland í Oregon í Bandaríkjunum handtók Nancy á miðvikudag og var hún ákærð fyrir morðið ásamt ólögmætri notkun á skotvopni. Hún er 68 ára gömul en eiginmaður hennar var 63 ára gamall þegar hann var skotinn til bana í eldhúsi í matreiðsluskóla í byrjun júní.

Daginn eftir morðið birti Nancy þessi skilaboð á Facebook, þar sem hún sagði frá sorg sinni

For my facebook friends and family, I have sad news to relate. My husband and best friend, Chef Dan Brophy was killed…

Posted by Nancy Brophy on Sunnudagur, 3. júní 2018

Nancy hefur gert greinina „How to Murder Your Husband“ óaðgengilega á bloggsíðu sinni. Samkvæmt frétt Huffington Post fór Nancy yfir hugsanleg tilefni, vopn og fleira sem gagnast þeim sem vilja myrða eiginmenn sína.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing