Í vikunni hefjast tökur á ástralskri endurgerð af íslensku kvikmyndinni Hrútar, eftir Grím Hákonarson. Ástralska framleiðslufyrirtækið WBMC sér um endurgerðina.
Hrútar vann meðal annars Un Certain Regard verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2015 og var framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna árið 2016.
Myndin fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi. Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson léku aðalhlutverkin.
Sjá einnig: Hrútar vann sinn flokk á kvikmyndahátíðinni í Cannes: „Gríðarlegur heiður“
Fjárstofn þeirra bræðra þykir einn sá besti á landinu og eru þeir margverðlaunaðir fyrir hrútana sína. Þrátt fyrir að deila sama landi og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir ekki talast við í fjóra áratugi.
Nýsjálenski leikarinn Sam Neil sem er þekktastur fyrir leik sinn í Jurassic Park myndunum fer með aðalhlutverk í endurgerðinni ásamt Michael Caton. Jeremy Sims sér um leikstjórn.
Sims segist vera spenntur fyrir tækifærinu að vinna með þessa kraftmiklu sögu á sínum heimaslóðum í samtali við Variety.