Fréttamaðurinn Helgi Seljan er kominn í tímabundið frí frá fréttum. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Kveiks.
„Eftir rúman áratug í Kastljósi og Kveik er Helgi Seljan kominn í tímabundið frí frá fréttum. Fyrr á árinu ákvað hann að umfjöllunin sem birtist í fyrsta Kveiksþætti vetrarins yrði hans síðasta verkefni fyrir þáttinn – að sinni,“ segir í færslunni sem sjá má í heild hér að neðan.
Síðasta verkefni Helga var þáttur Kveiks sem sýndur var í byrjun vikunnar þar sem fjallað um svörtu hliðar íslensks vinnumarkaðar og bág kjör útlendinga.
Eftir rúman áratug í Kastljósi og Kveik er Helgi Seljan kominn í tímabundið frí frá fréttum. Fyrr á árinu ákvað hann að…
Posted by Kveikur on Föstudagur, 5. október 2018