Myndband af íslenskum bónda að aflífa hænu hefur vakið mikinn óhug á samfélagsmiðlum í dag. Myndbandið birtist í Facebook-hópnum Vegan Ísland og hefur verið fordæmt af meðlimum hópsins. Fjallað er um málið á vef DV í dag en þar kemur fram að ekki sé vitað hvaðan á Íslandi myndbandið á uppruna sinn eða hversu gamalt það er.
Myndbandið hefur gengið manna á milli á Snapchat og á Facebook en vakti mikla athygli þegar það rataði inn á Vegan Ísland hópinn. Einn notandi segir þetta vitnisburð um að alls ekki sé farið vel fyrir hænum hér á landi.
„Þetta er algjör helvítis viðbjóður. Svo reynir fólk í alvörunni talað að sannfæra mann um að það sé farið svo vel fyrir hænum hérna á Íslandi. Helvítis andskotans ógeð.“
Myndbandið er alls ekki fyrir viðkvæma
https://www.youtube.com/watch?v=Vyqpe9x5S24&feature=youtu.be