Grínistinn Ari Eldjárn komst að því að besta aðferðin til þess að herma eftir Bubba Morthens væri að segja orðið mold. Þetta sagði Ari í spjallþættinum Með Loga sem sýndur verður í Sjónvarpi Símans annað kvöld. Sjáðu brot úr þættinum hér að neðan.
„Það var tímabil þar sem Bubbi talaði mikið um garðinn sinn. Hann talaði rosa mikið um mold og þá var eiginlega nóg að segja bara mold, mold mold,“ sagði Ari í þættinum.
Mold!
https://vimeo.com/295592052