Auglýsing

IKEA-geitin er mætt og Steindi var sá fyrsti til að búa til glens um málið

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að búið væri að koma fyrir hinni vinsælu IKEA-geit fyrir framan verslun IKEA í Kauptúni. Geitin hefur ekki beint átt sjö dagana sæla hér á landi en undanfarin ár hefur hún ýmist brunnið eða skemmst í óveðri.

Grínistinn og leikarinn Steinþór Hróar Steinþórsson er sérstakur áhugamaður um geitina og var ekki lengi að henda í góðan brandara á Twitter. „Var að leggjast upp í rúm, er að meta hvort ég eigi að fara að sofa eða laumast út og vera fyrstur í ár til þess að kveikja í IKEA-geitinni,“ skrifaði Steindi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing