Auglýsing

Fangelsaður fyrir að gefa börnum sínum ekkert annað en Coca-Cola

Franskur tveggja barna faðir var í vikunni dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir van­rækslu. Maðurinn sem á tvo syni, þriggja og fjögurra ára er sakaður um að hafa ein­göngu nært drengina á Coca-ColaAFP fréttastofan greinir frá þessu. 

Málið hefur vakið mikla athygli í Frakklandi en maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa beitt eigin­konu sína og börn of­beldi. Maðurinn sem er greindarskertur kunni hvorki að lesa né skrifa en hann eyddi ölum peningum heimilisins í áfengi.

Eftir að upp komst um málið var drengjunum komið á önnur heimili en fjar­lægja þurfti sjö tennur úr öðrum dregnum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing