Það var líf og fjör í Hörpu um helgina þegar helstu söngdívur Íslands héldu tónleika. Selma Björnsdóttir, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir sungu á ABBA sýningu í níunda sinn fyrir fullum Eldborgarsal Hörpu á meðan þær Elísabet Ormslev, Svala Björgvinsdóttir og Salka Sól Eyfeld komu fram sem GRL PWR og sungu Spice Girls lög á árshátíð Deloitte sem fór fram í Norðurljósasal Hörpu.
Sjá einnig: Þetta eru myndirnar sem slógu í gegn á Instagram um helgina – Abba hitti Spice Girls!
Hópurinn hittist baksviðs eftir tónleika og dívurnar voru svo sannarlega enn í stuði ef marka má myndband sem Svala Björgvinsdóttir setti á Instagram-síðu sína.
Á myndbandinu má sjá söngdívurnar í svokölluðu „sing-off“ þar sem ABBA hópurinn tekur Spice Girls lag á meðan GRL PWR hópurinn syngur Abba.
Sjá einnig: Myndband: Svala Björgvins segir frá sjúklega vandræðalegu augnabliki þegar hún hitti Mark Wahlberg