Auglýsing

Brot Björns Braga varða allt að 2 ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum

Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Björn Bragi Arnarsson sendi í nótt frá sér yfirlýsingu vegna myndbands sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum af honum þar sem hann áreitir 17 ára stelpu kynferðislega. Brot Björns Braga getur samkvæmt lögum varðað allt að 2 ára fangelsi. Þetta kemur fram í umfjöllun Stundarinnar í dag.

Björn Bragi játaði að hafa snert stúlkuna á „ósæmilegan hátt“ og baðst afsökunar í yfirlýsingu á Facebook síðu sinni í nótt. Í umfjöllun Stundarinnar kemur fram að slík snerting geti varðað allt að tveimur árum í fangelsi hvort sem hún sé innan eða utan klæða.

Samkvæmt 199. grein almennra hegningarlaga er refsingin fyrir þann sem gerist sekur um kynferðislega áreitni allt að 2 ár í fangelsi. Kynferðislegri áreitni felst meðal annars í því að strjúka, þukla eða káfa á kynfærum eða brjóstum annars manns innan klæða sem utan.

Seint aðfaranótt sunnudags hitti ég stúlku sem ég þekkti ekki. Við áttum stutt samskipti og ég snerti hana á ósæmilegan hátt. Af þessu var tekið myndband sem er nú í dreifingu,“ skrifar Björn Bragi í yfirlýsingunni á Facebook. 

„Þessi hegðun mín var algjörlega óásættanleg og ég er miður mín yfir því að hafa hagað mér með þessum hætti. Það að ég hafi verið undir áhrifum áfengis er engin afsökun. Ég setti mig í samband við stúlkuna og fjölskyldu hennar fyrr í kvöld. Ég bað hana einlægrar afsökunar á framkomu minni.“

Hann segist taka fulla ábyrgð af atvikinu og heldur áfram: „Ég átti gott samtal við móður stúlkunnar. Hún sagði mér að fjölmiðlar hefðu reynt að ná sambandi við bæði sig og stúlkuna. Hún vildi koma á framfæri ósk um að þau yrðu látin í friði. Það vil ég líka gera. Ég ber alla ábyrgð hér,“ skrifaði Björn Bragi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing