Hrekkjavakan verður vinsælli hér á landi með hverju árinu sem líður. Nú virðast krakkar á Íslandi vera búnir að taka upp þá hefð að labba á milli húsa og segja gott eða grikk. Leikarinn og grínistinn Steindi Jr. er einn af þeim sem fékk heimsókn í gær en hann var ekki alveg tilbúinn.
Það er hefð í mörgum löndum að krakkar og fullorðnir labbi á milli húsa á Hrekkjavökunni og segi grikkur eða gott. Gottið er vanalega einhversskonar sælgæti. Ef gottið er ekki gefið þá er það réttur þess sem bankar upp á að hrekkja húseigendur, vanalega á saklausan hátt.
Steindi Jr. vildi ekki verða fyrir hrekk og týndi til hluti af heimilinu til þess að gefa krökkunum. Steindi gaf krökkunum, sem voru klæddir upp sem draugar, pez, saltstangir sem hann var nýbyrjaður að borða og styttu.
Rétt í þessu voru krakkar að banka upp á dressaðir sem draugar sýndist mér og sögðu gott eða grikk. Ég vissi ekki að hrekkjuvakan væri komin svona langt. Ég gaf þeim pez, saltstangir sem ég var nýbyrjaður að borða og styttu, ég verð betur undirbúinn næst.
— Steindi jR (@SteindiJR) October 31, 2018