Hráefni:
60 gr rjómaostur
77 gr möndlumjöl
1 msk sýrður rjómi
2 msk sítrónusafi
börkur af 1/2 sítrónu
2 tsk sykurlaust sýróp t.d. frá good good
1 msk Sukrin melis “flórsykur”
1/2 tsk vanilludropar
1/16 tsk salt
kókosmjöl
Aðferð:
- Blanda öllum hráefnum vel saman í skál þar til þetta verður að deigi.
- Frysta deigið í 5-7 mín.
- Blanda kókosmjölinu og flórsykrinum saman á disk.
- Rúlla deiginu í 10 litlar kúlur í munnbita stærð.
- Velta þeim síðan uppúr kókosblöndunni.
- Setja kúlurnar inní frysti í 30-60 mín.
Gott er að geyma þær í frysti eða kæli í loftþéttum umbúðum en best er að njóta þeirra strax.