Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal hefur staðfest að ný þáttaröð af Atvinnumönnum okkar er væntanleg. Auðunn greindi frá þessu á Twitter um helgina en í tístinu uppljóstraði hann jafnframt því hvaða þrír atvinnumenn hafa staðfest þátttöku sína í þættinum.
Sjá einnig: Auðunn Blöndal pirraður yfir því að Asíski draumurinn fékk ekki Eddu-tilnefningu: „Var illa svekktur“
Atvinnumennirnir okkar 3 on og @hermannsson15 @katrintanja og @Halldorhelgarss fyrstu 3 sem eru staðfest! #Amo3
— Auðunn Blöndal (@Auddib) November 11, 2018
Þáttaröðin verður sú þriðja í röðinni og ljóst að margir bíða spenntir en fyrstu tvær slógu rækilega í gegn. Knattspyrnugoðið Eiður Smári Guðjónssen er einn þeirra ef marka má tíst sem hann skrifaði Audda eftir tilkynninguna. „Það eina sem þú hefur gert af viti í sjónvarpi,“ skrifaði Eiður.
Það eina sem þú hefur gert af viti í sjónvarpi!
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) November 11, 2018