Erlendur karlmaður lést þegar hann varð fyrir bíl á Sæbraut nærri Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Tildrög slyssins eru ókunn en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.
Lögreglan óskar eftir því vitni gefi sig fram, annað hvort í síma 444 1000 eða í gegnum netfangið gudmundur.pall@lrh.is.